Færsluflokkur: Bloggar

Þjóðaratkvæðagreiðsla, til hvers..??

Það er eiginlega alveg fáránleg staða, sem upp er komin í Icesave málinu. Þjóðaratkvæðagreiðsla á að fara fram 6. mars um lög, sem eru byggð á samkomulagi, sem er lélegra en það tilboð sem liggur á borðinu í dag!  Hverju skiftir þessi þjóðaratkvæðagreiðsla þá..??  Akkúrat engu..!!  Hreinlega verið að henda peningum í ekki neitt, til að þóknast Bessastaðabóndanum og stjórnarandstöðunni.

Það er kominn tími til að Íslendingar hætti að láta Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn, með aðstoð "InDefense" jakkafatakallanna, draga sig á asnaeyrum fram af bjargbrúninni. Nú er kominn tími til að setja punktum aftan við þetta mál og klára það. Ef ekki, þá á þetta eftir að kosta þjóðina meira í framtíðinni, vegna vantrausts og þarafleiðandi lélegra kjara á erlendum lánum ásamt erfiðleika á erlendum mörkuðum, en bara það sem liggur í sjálfum Icesave reikningnum. Þarmeð gæti leiðin útúr kreppunni orðið ansi torsótt og löng. Menn verða að gera sér grein fyrir því, að þó að reynt verði áfram að ná betri kjörum og það takist eftir einhverja mánuði, þá mun það verða landanum óhemju dýrt þegar lengra er litið. Íslendingar eru það háðir útflutningi og erlendu fjármagni, að þeir hafa hreinlega ekki efni á, að eyðileggja allan "Goodwill" í sinn garð, hjá öðrum þjóðum.

Ekki er ég neinn stjórnmála- eða stjórnsýslufræðingur, en það sem ég myndi álíta einu lausnina í núverandi stöðu, ef hægt væri, er að ganga að nýjasta tilboði Breta og Hollendinga, afturkalla lögin frá des 2009 (sem á að kjósa um 6. mars), leggja fram nýtt frumvarp til laga, byggt á þessum nýja samningi og fá það samþykkt á Alþingi.Svo má alveg ræða það, hvort þetta yrði svo lagt undir dóm almennings, þó að ég sé nú reyndar þeirrar skoðunar, að svona mál eigi ekki heima í þjóðaratkvæðagreiðslu.


Hverskonar háttalag er þetta!?

Stundum blöskrar manni hreinlega hvað svokallaðir stjórnmálamenn eru að aðhafast!

Fólk hefur kallað eftir lýðræði í þessu landi, en um leið og komandi ríkisstjórn virðist vilja leggja ákvörðun um ESB viðræður fyrir lýðræðislega kjörið Alþingi, þá eru formenn stjórnarandstöðu á móti þessu! Þeim finnst það furðulegt, að ríkisstjórnin geri ekki eins og alltaf hefur verið gert: Að skíta í restina af þinginu og taka ákvörðunina hvort sem menn vilja eða ekki. Hvað er það eiginlega sem þessir menn vilja?

Á sama tíma sér maður að viss öfl í þjóðfélaginu eru meira upptekin af því að fólk fari í svokallað greiðsluverkfall, en að það geri samning við kröfuhafa um greiðslu. Einskonar fjöldahreifing til að afsaka allt með kreppunni og þá er bara að gefa skít! Allt er aðgerðaleysi ríkisstjórnar að kenna.

Mín spurning er: Er það mikilvægara fyr stjórnarandstöðuna að fá fólkið á móti því, sem verið er að gera, en að fólkið fái lausn á sínum vandamálum???


Fyrsta færsla á Blog.is

Hef ekki bloggað áður, en verið iðinn við að lesa ýmsar færslur hjá öðrum og "kommenterað" talsvert. Hef ég þá oft íhugað, að byrja sjálfur og er nú verið að reyna að koma því af stað. Ég mun vonandi skrifa um allt og ekkert, þegar andinn kemur yfir mann og ekki einblína á einhvern einn málaflokk.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband